Blásum byr
í seglin


Mótum framtíðina saman

Tillögur að stefnumótun
í menntamálum

Nemendur við skólaborð í kennslustofu

Blásum til sóknar í íslensku menntakerfi

Það blandast engum hugur um að íslenskt menntakerfi er í grunninn gott og margt er þar frábærlega gert. Börnunum okkar líður vel, þau eru fylgin sér og dugleg. Um allt land er unnið faglegt og metnaðarfullt starf, á öllum skólastigum og skólagerðum. Sumt er meira að segja til svo mikillar fyrirmyndar að aðrar þjóðir horfa til okkar sem fyrirmyndar í menntamálum.

En íslenskt samfélag stendur á mikilvægum tímamótum í menntamálum. Niðurstöður mælinga kalla á viðbrögð, kennaraskortur er viðvarandi áskorun, nemendahópar verða fjölbreyttari og örar tæknibreytingar, meðal annars gervigreind, munu breyta námi og kennslu.

Við þurfum að bregðast við. Við verðum að bæta úr með markvissum langtímaumbótum, skýrum markmiðum og stöðugri eftirfylgni.

Á sama tíma býr mikill styrkur í íslensku skólastarfi: öflugt fagfólk, áhersla á jöfnuð, vellíðan og sköpun og sú grundvallarhugsun að skólinn eigi að vera fyrir öll börn og ungmenni.

Kennarasamband Íslands vill þess vegna eiga frumkvæði að samfélagslegu samtali um hvers konar skólakerfi við viljum byggja til framtíðar. Við höfum ekki öll svörin og ætlum ekki að verja óbreytt ástand. Við viljum byggja breytingar á þekkingu, reynslu fagfólks, samtölum við samfélagið og skýrri langtímasýn.

Fyrir barn er skólagangan ein samfelld vegferð. Leikskólinn leggur grunn að tungumáli, samskiptum, leik, sköpun og löngun til að læra. Hann er menntastofnun og þar þurfa fagmennska og mannauður að fylgja þeim kröfum sem samfélagið gerir.

Grunnskólinn er sameiginlegur vettvangur allra barna. Þar þarf að byggja traustan námsgrunn en jafnframt rækta sjálfstæða hugsun, sköpun, félagsfærni og lýðræðisvitund.

Framhaldsskólinn byggir áfram á þessum grunni og þarf að bjóða fjölbreyttar og jafngildar leiðir til þekkingar, hæfni og þátttöku í samfélaginu.

Tónlistarskólarnir eru hluti sömu heildar og gefa börnum og ungmennum tækifæri til að rækta sköpun, tjáningu og ólíka hæfileika. Þeir þurfa skýrari stöðu innan menntakerfisins.

Við viljum skóla fyrir öll börn og ungmenni. En það verður ekki gert með stefnu einni saman. Það þarf mannauð. Menntaða kennara, stjórnendur, ráðgjafa og annað fagfólk, hæfilegar hópastærðir, tíma til undirbúnings og samstarfs, góða stoðþjónustu og öflug námsgögn.

Mannauðurinn er ekki aukaatriði í skólakerfinu, hann er forsenda þess.

Við eigum jafnframt að gera kröfur um árangur og taka niðurstöður mælinga alvarlega. Farsæl skólaganga er meira en það sem auðvelt er að mæla. Hún snýst um þekkingu og námsframvindu, en líka líðan, sköpun, gagnrýna hugsun, sjálfsmynd, félagsfærni, sjálfstæði og tilfinningu fyrir því að tilheyra.

Stjórn KÍ leggur áherslu á samfélagslegt samtal og í þessum bæklingi er tæpt á mörgum þeirra umræðuefna sem við teljum að best séu leidd í jörð með slíku samtali. Stjórn KÍ og framkvæmdastjórn skólamálaráðs leggja upp þau málefni sem í bæklingnum eru sem grundvöll að því samtali og við höfum væntingar um víðtæka þátttöku á ólíkum sviðum samfélagsins, skólakerfinu öllu til heilla.

Mótum framtíðina saman


Magnús Þór Jónsson

formaður Kennarasambands Íslands

Undirskrift: Magnús Þór Jónsson

Þótt margt sé frábærlega gert í íslensku menntakerfi glímir það við áskoranir sem kalla á tafarlaus viðbrögð, úrbætur og skýra langtímastefnu sem lifir ríkisstjórnir og kjörtímabil.

Stúlka að velja bók í bókasafni

Öll börn og ungmenni eiga rétt á að ná góðu valdi á lestri og lesskilningi. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra, heimila, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og stjórnvalda.

Eflum læsi og lesskilning


Við þurfum að taka höndum saman og efla lesskilning barna. Læsi og lesskilningur byggjast upp alla skólagönguna og er sameiginlegt verkefni okkar allra.

Öll börn og ungmenni eiga rétt á að ná góðu valdi á lestri og lesskilningi. Það er á ábyrgð alls samfélagsins, frá heimilum og leikskóla alla leið í gegnum grunn- og framhaldsskóla, að tryggja að þau nái þessari færni. Grunnurinn er lagður með tungumáli, samtali, bókum og ríkulegri málörvun strax í leikskóla. Á fyrstu árum grunnskólans þarf að tryggja sterka lestrar- og ritunarfærni og bregðast hratt við þegar barn þarf aukinn stuðning.

Á mið- og unglingastigi færist áherslan í auknum mæli yfir í orðaforða, dýpri lesskilning og hæfni til að takast á við lengri, fjölbreyttari og flóknari texta í öllum námsgreinum. Framhaldsskólinn tekur síðan við keflinu og eflir læsi sem verkfæri til þekkingaröflunar, sjálfstæðrar hugsunar, túlkunar og úrvinnslu upplýsinga.

Tónlistarskólar gegna einnig mikilvægu hlutverki þegar kemur að málþroska og þróun læsis. Í tónlistarnámi þjálfa nemendur meðal annars hlustun, hljóðfall og blæbrigði, lestur og að tjá sig með fjölbreyttum hætti.

Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra. Kennarar þurfa faglega þekkingu, tíma til undirbúnings, góð námsgögn og fjölbreytt lesefni. Stjórnvöld þurfa að tryggja nauðsynlegan stuðning.

Eflum námsgagnagerð


Ráðast þarf í öfluga námsgagnagerð í samræmi við framfarir í kennsluaðferðum og vinna upp það sem tapast hefur á undanförnum áratugum.

Fjárframlög til námsgagna hafa dregist gríðarlega saman og eru nú aðeins um 39% af því fjármagni sem sett var í málaflokkinn árið 2007, eða fyrir um tuttugu árum.

Sem dæmi þá setur íslenska ríkið aðeins um 0,4% af rekstrarkostnaði grunnskóla í námsgögn á meðan hin Norðurlöndin setja á bilinu 1,5 til 4% í gerð námsgagna.

Um 8.000 krónum er varið í námsgagnagerð á hvern nemanda á Íslandi á meðan Finnar, svo dæmi sé tekið, verja um 30.000 krónum á hvern nemanda. Staðreyndin er sú að nánast allt fjármagn til námsgagnagerðar hérlendis hefur farið í endurprentanir námsbóka en sáralítill hluti í þróun á nýju eða stafrænu námsefni.

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnti í byrjun september 2026 að fjármagn til námsgagnagerðar yrði aukið. Það er fagnaðarefni en betur má ef duga skal. Halda þarf markvisst áfram að vinna upp námsgagnagatið og tryggja stöðuga fjármögnun vandaðra námsgagna fyrir öll skólastig og allar skólagerðir til framtíðar.

Prentvél prentar námsbækur

Fjárframlög til námsgagna hafa dregist gríðarlega saman undanfarna áratugi. Þau þarf að stórauka og vinna markvisst að útgáfu vandaðra námsgagna fyrir öll skólastig og allar skólagerðir til framtíðar.

Fjöldi grunnskólanema sem njóta sérkennslu eða stuðnings

Hlutfall grunnskólabarna sem njóta stuðnings í árgangi

Hlutfall árgangs með stuðning

Hlutfall grunnskóladrengja sem njóta stuðnings í árgangi

Hlutfall grunnskólastúlkna sem njóta stuðnings í árgangi

Ekki er gerður greinarmunur á nemendum sem fá aðstoð allan veturinn eða þeim sem njóta tímabundins stuðnings, til dæmis í 2 á viku í 4–6 vikur. Hver nemandi er talinn einu sinni.

Heimild: Hagstofa Íslands

Skólinn er fyrir öll börn og ungmenni en hópastærðir þurfa að taka mið af þörfum nemenda. Eftir því sem þarfir innan hóps eru fjölbreyttari þarf aukið svigrúm til að fjölga fagfólki.

Skoðum skipulag
bekkja og hópa


Styrkja þarf samstarf barna, ungmenna og kennara með því að leggja aukna áherslu á sveigjanlega og markvissa hópasamsetningu í skólastarfinu.

Skólinn er fyrir öll börn og ungmenni. Skipulag skólastarfs þarf að taka mið af því að nemendahópar eru fjölbreyttir og þarfir barna ólíkar. Þegar raðað er í námshópa þarf að tryggja að stærð hópanna, samsetning þeirra og mönnun geri kennurum kleift að sinna hverjum og einum nemanda.

Hópastærðir þurfa því að taka mið af þörfum nemenda. Eftir því sem þarfir innan hóps eru meiri og fjölbreyttari þarf aukið svigrúm til að fjölga fagfólki, minnka hópa eða skipuleggja starfið með öðrum hætti. Þar getur t.d. samkennsla, teymiskennsla eða náið samstarf kennara og annars fagfólks verið dýrmætt og skapað mikilvægan sveigjanleika.

Kjarninn er sá tími sem kennari hefur með hverju barni og ungmenni. Viðeigandi hópastærðir og næg mönnun skapa kennurum betri forsendur til að byggja upp sterk tengsl, fylgjast með námi og líðan og bregðast við ólíkum þörfum.

Þannig styrkjum við skólann sem uppbyggilegan vettvang þar sem fjölbreytileikinn er viðurkenndur og öll fá raunveruleg tækifæri til að njóta sín og ná árangri.

Nemendur við rafmagnsverkefni í kennslustofu

Opnum leiðina inn í nám og samfélag með íslenskuna að vopni


Öll börn og ungmenni eiga rétt á að geta tekið virkan þátt í námi og skólasamfélagi óháð tungumála- og menningarbakgrunni.

Öflugt nám í íslensku sem öðru tungumáli er lykill að því að tryggja þann rétt. Sú ábyrgð nær til allra skólastiga og skólagerða og samfella þarf að vera í stuðningi þegar nemendur færast milli skólastiga. Tónlistarskólar eru hluti af öflugu inngildandi menntakerfi og nýta þarf betur þau fjölbreyttu tækifæri sem felast í tónlist þegar kemur að eflingu íslenskunáms, tengslamyndunar og þátttöku.

Námsgreinin ÍSAT (íslenska sem annað tungumál) þarf að vera samþætt öðru námi. Nemendur eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að ná fullu valdi á íslensku áður en þeir fá tækifæri til að læra, nýta styrkleika sína og tilheyra skólasamfélaginu. Því þarf öflugt íslenskunám að fara saman við faglegan stuðning í námi, góða móttöku og virkt samstarf við fjölskyldur. Tungumál og menning nemenda eru jafnframt styrkleikar sem byggja þarf á.

Til þess þurfa kennarar þekkingu, tíma, viðeigandi námsgögn og aðgang að sérhæfðri ráðgjöf og starfsþróun. Ekki má vera tilviljun háð hvaða skóla barn sækir hvort það fær þann stuðning sem það þarf.

Stúlka á regnbogagötunni í Reykjavík
Fjöldi grunnskólabarna með erlendan bakgrunn

Heimild: Hagstofa Íslands

Hlutfall grunnskólabarna í árgangi með erlendan bakgrunn

00,050,100,150,200,2514%200615%16%200817%17%201018%18%201219%20%201421%22%201623%24%201825%25%202026%27%202229%30%2024

Heimild: Hagstofa Íslands

Öflugt íslenskunám þarf að vera samþætt öðru námi frá upphafi svo tungumálaörðugleikar hamli ekki nemendum í að nýta styrkleika sína og tilheyra.

Tryggjum fjölbreytni og sveigjanleika


Tryggja þarf menntakerfi þar sem börnum og ungmennum er gert kleift að þroska ólíka hæfileika og færni.

Íslenskt skólastarf byggir á sterkum hefðum um fjölbreytta menntun þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að þroska ólíka hæfileika og læra með fjölbreyttum hætti.

Leikskólarnir efla nám í gegnum leik og sköpun, verk- og listgreinar fylgja börnum allan grunnskólann samhliða bóklegu námi og í framhaldsskólum fá ungmenni fjölbreytt námsframboð og svigrúm til sérhæfingar. Þá bæta tónlistarskólarnir við möguleikum til að þroska sköpunargáfu og listræna hæfileika. Þannig skapar íslenskt menntakerfi rými fyrir ólíkan áhuga, styrkleika og hæfileika barna og ungmenna og viðurkennir að þau læra, þroskast og blómstra með ólíkum hætti.

Sundkennsla er líka mikilvæg. Ísland hefur lagt áherslu á sundkennslu alla grunnskólagönguna enda snýst hún um lífsnauðsynlega færni, öryggi, heilsu og hreyfingu, en jafnframt þátttöku í einstakri íslenskri sundlaugamenningu.

Barn að synda með sundfjöl
Fjöldi grunnskólanema í hverjum grunnskóla 2024

0100200300400500600700800Fjöldi nemanda4736GrunnskólarMeðaltal: 291 nem.

Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga
https://www.samband.is/grunnskolar

Fjöldi leikskólabarna í hverjum leikskóla 2024

0255075100125150175200225Fjöldi nemanda5210LeikskólarMeðaltal: 79,3 leikskólabörn

Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga
https://www.samband.is/leikskolar

Menntakerfið þarf faglegt og fjárhagslegt svigrúm til að rækta ólík áhugamál, styrkleika, sköpun og hæfileika barna – og viðurkenna að þau læra, þroskast og blómstra með ólíkum hætti.

Fjölgum mælikvörðum og nýtum þá rétt


Barn að leik með trékubba í leikskóla

Samræmdar mælingar eru af hinu góða, en þær þurfa að ná yfir fleira en námsárangur. Nýtum þær mælingar rétt og markvisst sem verkfæri til úrbóta í námi og kennslu, líðan og skólasókn.

Við þurfum sameiginlega mælikvarða á árangur skólastarfs sem ná til fleiri þátta en námsárangurs og nýtast til raunverulegra umbóta.

Styrkja þarf grundvöll samræmdra mælinga og tryggja að þær veiti reglulegar og áreiðanlegar upplýsingar sem nýtast nemendum, kennurum og skólum til að bæta nám og kennslu.

Mælikvarðarnir þurfa að verða til í samtali nemenda, foreldra, kennara, skólastjórnenda, stjórnvalda og samfélagsins.

Við höfum stigið mikilvæg skref með samræmdum námsmælingum og höfum jafnframt alþjóðlegar mælingar á borð við PISA.

Fjölbreyttar upplýsingar liggja fyrir um þætti á borð við líðan barna, þátttöku þeirra og skólasókn. Næsta skref er að tengja þessar upplýsingar betur saman og ákveða hvaða mælikvarðar endurspegla þá menntun og þann árangur sem við viljum ná.

Mælingar og mælikvarðar í skólum þurfa að vera hluti af stærri heild og við verðum að þora að mæla fleiri og fjölbreyttari þætti en stærðfræði og lestur, þætti eins og sköpun, gagnrýna hugsun, líðan, námsframvindu og félagsfærni, þekkingu og tækifæri barna til að nýta styrkleika sína.

Mælingar eiga hvorki að vera dómur yfir einstökum skólum, kennurum eða nemendum, né grundvöllur einfaldra samanburðartaflna eða samkeppni milli skóla.

Niðurstöður samræmdra mælinga eiga fyrst og fremst að vera faglegt verkfæri kennara og skóla til umbóta. Þær eiga að hjálpa kennurum að greina styrkleika og þarfir nemenda, bregðast tímanlega við og veita viðeigandi stuðning.

Foreldrar og nemendur eiga einnig að fá skýrar upplýsingar um stöðuna og næstu skref í náminu.

Tökum upp ytra mat


Það þarf að taka upp að nýju reglubundið ytra mat á skólum sem styður við innra mat, faglega þróun og stöðugar umbætur í skólastarfi.

Lög um skólastarf gera ráð fyrir að hver skóli meti reglulega eigið starf með innra mati og að jafnframt fari fram ytra mat á vegum stjórnvalda. Þessir tveir þættir eiga að vinna saman og mynda samfellt gæðakerfi fyrir íslenskt skólastarf.

Ytra mat ætti ekki að nota eingöngu til að leita að því sem er að heldur vera faglegur spegill á starf skólans; draga fram styrkleika, greina hvar tækifæri eru til umbóta og styðja stjórnendur, kennara og annað fagfólk í áframhaldandi skólaþróun.

Nútímalegt ytra mat þarf að ná utan um kjarnann í skólastarfinu, nám og líðan barna og ungmenna. Það á að rýna í kennslu og kennsluhætti, námsumhverfi, hópastærðir og samsetningu námshópa, stuðning við fjölbreyttar þarfir, faglegt samstarf og starfsumhverfi kennara.

Matið þarf jafnframt að leiða til eftirfylgni. Þegar styrkleikar eða umbótatækifæri hafa verið greind þarf skólinn að fá stuðning og svigrúm til að bregðast við.

Nemendur við skrifborð í kennslustofu

Ytra mat á að rýna kjarnann í skólastarfinu, nám og líðan nemenda, kennsluhætti, náms- og starfsumhverfi. Það þarf síðan að leiða til eftirfylgni ef umbótatækifæri hafa verið greind.

Fjölgum leikskólakennurum

Börn að leik í leikskóla
Hlutfall fagmenntaðra í leikskólum eftir landshlutum 2024

Heimild: Hagstofa Íslands

Samkvæmt lögum eiga 2/3 stöðugilda við kennslu og uppeldi í leikskólum að vera kennarar. Við erum langt frá því markmiði. Við megum ekki slá af faglegum kröfum á fyrsta menntastiginu.


Leikskólinn er menntastofnun og fagmennska er forsenda gæða innan þeirra.

Leikskólinn er fyrsta skólastigið og hlutverk hans snýr fyrst og fremst að börnunum. Þar fara saman menntun, uppeldi og umönnun og starfið byggist á faglegri þekkingu á námi, þroska og velferð ungra barna. Leikskólinn er því ekki „gæsluúrræði fyrir foreldra“ eða „þjónusta við atvinnulífið“ heldur mikilvægur hluti menntakerfisins. Leikskólakennarar eru sérfræðingar í menntun ungra barna. Þeir leiða menntunarstarfið, skapa námsumhverfi og fylgja námi og þroska hvers barns. Lög gera ráð fyrir því að lágmark tveir þriðju hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi í leikskólum teljist til stöðugilda kennara. Við erum langt frá því markmiði, en kennaraskortur má aldrei verða röksemd fyrir því að lækka faglegar kröfur.

Við þurfum þess í stað að fjölga leikskólakennurum og gera starfið eftirsóknarverðara. Það krefst góðra starfsaðstæðna, faglegs svigrúms og þess að leikskólakennarar geti raunverulega nýtt menntun sína og sérþekkingu. Fyrstu ár ævinnar skipta gríðarlegu máli fyrir nám, þroska og farsæld og því eigum við að gera miklar faglegar kröfur til þeirra sem leiða menntun yngstu barnanna.

Leyfum framhaldsskólanemum að blómstra


Framhaldsskólanemar í fatahönnun
Hlutfall nýnema sem hafa hætt í framhaldsskóla án þess að útskrifast eða skrá sig í annan skóla

0%2%4%6%8%10%2016–2017–2018–2019–2020–2021–2022–2023–2024–201720182019202020212022202320242025

Gögn um nýnemabrottfall úr framhaldsskóla – skilgreint sem fjöldi nýnema í framhaldsskóla á skólaárinu án þess að útskrifast eða flytja sig í annan framhaldsskóla, deilt með heildarfjölda nýnema.

Heimild: Mælaborð um farsæld barna
https://www.farsaeldbarna.is/

Mikilvægi framhaldsskóla í náms- og félagslegum þroska ungmenna er ótvíræður. Sífelldur niðurskurður hefur dregið úr námsframboði og fjölgað nemendum sem hvorki finna sig í vinnu eða skóla.

Framhaldsskólar eru samfélög um þroska, en ekki bara framleiðsla á fólki sem þarf að komast á vinnumarkað sem fyrst.

Styrkur framhaldsskólanna felst í fjölbreytileikanum. Ungt fólk á Íslandi getur valið úr ólíkum námsleiðum eftir áhuga, eigin styrkleikum og framtíðaráformum, hvort sem þær liggja í bóknámi, starfs- og tækninámi, listum eða einhverju allt öðru. Engin námsleið er annarri æðri heldur eiga þær allar að njóta jafnræðis og jafnrar virðingar.

Framhaldsskólar eru lifandi samfélög þar sem ungt fólk fær tækifæri til þess að spyrja spurninga, ígrunda, móta og tjá skoðanir, gera mistök, halda sínu fram og gera málamiðlanir. Framhaldsskólar þurfa að hafa öflugt stoðkerfi og svigrúm til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda svo að hver á sinn hátt geti búið nemendum sínum umhverfi þar sem þeir byggja upp fjölbreytta hæfni, verða þátttakendur í samfélagi og taka ábyrgð á eigin lífi.

Hópur ungmenna á aldrinum 16–24 ára sem hvorki er í skóla né vinnu og aðeins með grunnskólapróf stækkar með hverju ári. Sífelldur niðurskurður til framhaldsskólanna hefur dregið úr námsframboði og til að spyrna við fótum þarf að setja meira fjármagn í framhaldsskólana og auka framboð á fjölbreyttum námsleiðum til að grípa þá nemendur sem finna sig ekki í framhaldsskóla.

Hlutfall fólks á aldrinum 18–24 ára sem er hvorki í námi né starfsnámi 2025

Staða Íslands varðandi nemendur sem eru á aldrinum 18–26 ára og flokkast samkvæmt Eurostat sem snemmhættir (e. early leavers).

Vísitalan mælir hlutfall íbúa á aldrinum 18–24 ára, með að hámarki grunnskólamenntun, sem tóku ekki þátt í neins konar námi eða þjálfun á fjórum vikum fyrir könnunina. Með grunnskólamenntun er átt við stig 0–2 samkvæmt ISCED-flokkuninni (alþjóðlegur staðall um flokkun menntunar) frá árinu 2011 fyrir gögn frá árinu 2014 og síðar, en stig 0–3C (stutt nám) samkvæmt ISCED-flokkuninni frá 1997 fyrir gögn til og með árinu 2013. Gögnin eru fengin úr vinnumarkaðskönnun ESB (EU-LFS).

Heimild: Eurostat
https://ec.europa.eu/eurostat/databrowser/view/sdg_04_10/default/bar?lang=en&category=t_educ.t_educ_outc

Tryggjum tónlistarskólanum
heildstæða lagaumgjörð


Tónlistarskólar þurfa að fá skýran lagalegan ramma og opinbera viðurkenningu á Íslandi, til jafns við aðra skóla.

Tónlistarmenntun, söngur og skapandi starf eru órjúfanlegur hluti af menntun, þroska og velferð einstaklinga og samfélaga. Tónlistarmenntun er grundvallarþáttur í heildstæðri, merkingarbærri menntun þar sem horft er til jöfnuðar, gæða og tilgangs menntunar, eins og kemur skýrt fram í ramma UNESCO um menningar- og listmenntun, frá 2024.

Tónlistarskólinn býr ekki við heildstæða lagaumgjörð líkt og aðrar skólagerðir; leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli, og starfsemi tónlistarskóla hefur goldið fyrir veika ytri umgjörð og alvarlega kerfisbresti. Það er í þágu nútímalegs heildstæðs menntakerfis að tryggja tónlistarskólunum lagaumgjörð sem endurspeglar víðtækt hlutverk og ábyrgð tónlistarskóla og styður við fjölbreytt tækifæri til þróunar og samstarfs í skólasamfélaginu. Sá stuðningur sem fæst með faglegri lagaumgjörð er nauðsynleg lífæð fyrir starfsemi og þróun tónlistarskólakerfisins.

KÍ kallar eftir heildarlögum um skólastarf í tónlistarskólum og að mörkuð verði heildstæð stefna í málefnum tónlistarmenntunar þar sem fagmennska, gæði og framtíðarsýn eru höfð að leiðarljósi. Styrking tónlistarskóla og starfsumhverfis tónlistarkennara er lykilatriði í að efla menntakerfið og tryggja að Ísland verði áfram samfélag sem byggir á sköpun, menningu og sterkum mannauði til framtíðar.

Fjöldi barna á biðlista eftir tónlistarnámi eftir stærð tónlistarskóla

Ríflega einn ábiðlista á hverjafimm í minnstuskólunumEinn á biðlista fyrirhverja þrjá í námi ístærstu skólunum05001.0001.5002.0002.5000,8%0–7519,9%76–15016,2%151–2252,2%226–3008,4%301–3752,0%376–45050,5%451 og stærri2.201Allir

Stúlka leikur á fiðlu

Tónlistariðkun og skapandi starf eru órjúfanlegur hluti af þroska og velferð einstaklinga og samfélaga. Engin heildstæð sérlög eru í gildi um tónlistarskóla líkt og um aðrar skólagerðir.

Bregðumst rétt við nýrri tækni


Ljósaraðir í gagnaveri

Ný tækni eins og gervigreind breytir kennsluaðferðum. Við eigum ekki að berjast gegn henni, en fjárfesta í þekkingu og starfsþróun samhliða því að rækta og efla hið mannlega í náminu.

Gervigreind á að styðja nám og kennslu en á sama tíma þarf skólinn að rækta hið mannlega í námi og starfi.

Gervigreind breytir því hvernig við lærum, kennum og vinnum. Skólinn á ekki að berjast gegn þeirri þróun heldur kenna börnum og ungmennum að taka þátt í samfélagi þar sem þekking, tæknilæsi, gagnrýnin hugsun og hæfni til að meta upplýsingar verður sífellt mikilvægari.

Um leið þarf skólinn að rækta það sem er mannlegt í námi: sköpun, samskipti, samkennd, siðferðilega dómgreind og hæfni til að hugsa sjálfstætt. Gervigreind á að styðja nám og kennslu en ekki koma í stað sambands kennara og nemanda eða faglegs mats kennarans.

Kennarar eiga að vera virkir þátttakendur í að móta þessa framtíð. Við þurfum að fjárfesta í þekkingu og starfsþróun kennara, rannsaka áhrif tækninnar og tryggja fagleg, siðferðileg og lýðræðisleg viðmið um notkun hennar.

Tryggjum réttlátari fjármögnun


Við þurfum að vita hvað það kostar í raun að veita börnum og ungmennum góða menntun.

Íslenskir skólar starfa við afar ólíkar aðstæður. Stærð skóla, húsnæði og aðstaða, skólaakstur, staðsetning, stærð eða samsetning námshópa og aðrir rekstrarþættir geta haft veruleg áhrif á kostnað á hvern nemanda. Hár heildarkostnaður segir því ekki sjálfkrafa að meira fjármagni sé varið til náms og kennslu.

Við þurfum að rýna sérstaklega í raunkostnað lykilþátta skólastarfsins: kennslu og faglega mönnun, hópastærðir, stuðning við fjölbreyttar þarfir barna og ungmenna, námsgögn, búnað og þann tíma sem fagfólk hefur til að sinna hverju barni og ungmenni.

Með því að greina kostnað á skýran hátt getum við betur metið hvort nægu fjármagni sé raunverulega varið í menntun barna og ungmenna.

Markmiðið á ekki aðeins að vera að vita hvað skólakerfið kostar, heldur hvað það kostar að tryggja hverju barni og ungmenni það nám og þá menntun sem samfélagið hefur ákveðið að það eigi rétt á.

Sama sjónarmið þarf að hafa að leiðarljósi þegar kostnaður íslenska skólakerfisins er borinn saman við önnur lönd. Alþjóðlegur samanburður er mikilvægur en hann þarf að byggja á sambærilegum þáttum.

Við höfum til dæmis valið að halda úti litlum skólum í dreifðum byggðum. Það kostar, en endurspeglar um leið samfélagsleg gildi og stefnu í menntamálum. Þegar við berum okkur saman við önnur lönd verður að bera saman sambærilega þætti.

Breyting milli ára á framlögum sveitarfélaga til grunnskóla m.v. íbúafjölda

0-0,05-0,10-0,15-0,20200720092011201320152017201920212023

Sveitarfélög: Grunnskólastig – Fræðsluútgjöld staðvirt á mann – Breyting frá fyrra ári.

Heimild: Hagstofa Íslands

Breyting milli ára á framlögum ríkissjóðs til framhaldsskóla m.v. íbúafjölda

0-0,05-0,10-0,15-0,20-0,2520172018201920202021202220232024

Ríkissjóður: Framhaldsskólastig – Fræðsluútgjöld staðvirt á mann – Breyting frá fyrra ári.

Heimild: Hagstofa Íslands

Raunverulegt dæmi um kostnað við rekstur leikskóla í sveitarfélagi á landsbyggðinni

0M kr.1M kr.2M kr.3M kr.4M kr.5M kr.6M kr.7M kr.8M kr.3.834.991477.880Leikskóli A15 nemendur4.026.278983.813816.031Leikskóli B34 nemendur3.844.270508.216392.224Leikskóli C55 nemendur3.699.093860.028494.742Leikskóli D82 nemendur3.043.146614.149Leikskóli E96 nemendur

Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga
https://www.samband.is/leikskolar

Raunverulegt dæmi um kostnað við rekstur grunnskóla í sveitarfélagi á landsbyggðinni

0M kr.1M kr.2M kr.3M kr.4M kr.5M kr.6M kr.7M kr.8M kr.4.318.5511.623.1661.374.283Grunnskóli A29 nemendur2.085.6541.183.868615.020Grunnskóli B105 nemendur2.180.256780.922498.094Grunnskóli C142 nemendur1.937.943514.746500.682Grunnskóli D197 nemendur1.947.146589.495388.466Grunnskóli E204 nemendur

Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga
https://www.samband.is/grunnskolar

Fjölbreyttir og misfámennir skólar um allt land búa við afar mismunandi aðstæður. Rýna þarf í raunkostnað skólastarfsins og meta hvort nægt fjármagn fari í námið sjálft, faglegt starf og stuðning við nemendur.

Lærum og nýtum það besta frá öðrum


Stúlka í smíðastofu

Aðrar þjóðir horfa til íslenska skólakerfisins vegna ríkrar áherslu á lýðræði, jafnrétti, vellíðan, sköpun og inngildingu. Við eigum sömuleiðis að horfa til þess sem best er gert annarsstaðar.

Rödd KÍ er sterk í alþjóðlegu samhengi og við eigum að nýta okkur það til að lyfta því upp sem vel er gert og læra af öðrum það sem getur nýst okkur.

Íslenska skólakerfið á ekki að einangra sig, heldur á það að vera virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi til að sækja nýja þekkingu og deila eigin styrkleikum.

Íslenska skólakerfið er þekkt á alþjóðavettvangi fyrir ríka áherslu á lýðræði, jafnrétti, vellíðan, sköpun og inngildingu, skóla fyrir alla. KÍ vill verja þessi gildi svo að mælingar skyggi ekki á það sem gerir íslenska skólann sérstakan.

Rödd KÍ er sterk í alþjóðlegu samhengi. KÍ tekur þátt í mikilvægu samstarfi á erlendri grundu, eins og hjá Education International (Heimssamtökum kennara) og innan Norræna kennarasambandsins (NLS). Á þessum vettvangi höfum við áhrif á stefnumótun og umræður um menntamál og réttindi kennara á heimsvísu.

Við eigum að lyfta því upp sem vel er gert og vera stolt af okkar árangri. Við eigum jafnframt að afla okkur þekkingar sem getur nýst í okkar kerfi. Í stað þess að finna upp hjólið heima við eigum við að nýta tengsl á alþjóðavettvangi til að skoða hvað aðrar þjóðir gera vel.

Styrkjum skólann sem samfélag


Skólinn á að vera lifandi samfélag, opið og aðgengilegt öllum.

Við viljum auka jöfnuð og vellíðan í skólakerfinu. Skólinn er ekki bara stofnun heldur lifandi samfélag. Þar á að rækta góð mannleg samskipti, gagnkvæmt traust og samvinnu þar sem öll vinna að sama markmiði og finna samleið.

Skólinn á að vera opinn og aðgengilegur öllum. Við eigum að stuðla að því að öll börn og ungmenni fái notið sín, óháð bakgrunni, efnahag, uppruna, kynhneigð eða líkamlegri og andlegri getu. Enginn á að upplifa sig utanveltu eða vera skilinn út undan.

Skólakerfið á ekki að steypa alla í sama mótið eða mæla alla út frá sömu kröfum. Við erum öll ólík, líka börn og ungmenni. Sum eru sterk í bóklegu námi, önnur í listum, íþróttum, tækni eða félagsfærni. Skólinn á að hjálpa hverju og einu að gera vel og blómstra á þeim vettvangi.

Litrík hús í Reykjavík

Leggjum áherslu á jöfnuð og vellíðan. Skólinn á að stuðla að því að öll börn og ungmenni fái notið sín, óháð bakgrunni, efnahag, uppruna, kynhneigð eða líkamlegri og andlegri getu.

Vöndum námskrá og innleiðingu


Nemi í bifvélavirkjun við opna vélarhlíf

Námskrár mega ekki staðna. Þær þurfa reglulega endurskoðun og stöðuga uppfærslu í takt við þróun samfélags, þekkingar, tækni og kennsluhátta – með virkri þátttöku kennara.

Námskráin þarf að vera lifandi rammi um skólastarf.

Námskrár allra skólastiga og skólagerða þurfa að vera skýr rammi um nám og kennslu og endurspegla þá þekkingu, hæfni og gildi sem við viljum að skólastarf byggist á. Þær þurfa að veita skýra leiðsögn um markmið og samfellu í námi en jafnframt faglegt svigrúm til að laga kennslu að ólíkum nemendahópum og aðstæðum skóla.

Námskrár mega ekki staðna. Þær þurfa reglulega endurskoðun og stöðuga uppfærslu í takt við þróun samfélags, þekkingar, tækni og kennsluhátta. Um leið þarf að meta af hreinskilni hvernig gildandi námskrár hafa reynst. Innleiðing þeirra tókst að ýmsu leyti ekki nægilega vel og því þarf að meta hvort skynsamlegt sé að þróa og vinna með þann grunn sem fyrir er eða ráðast í heildstæða endurritun þeirra.

Hvaða leið sem verður valin skiptir innleiðingin mestu. Kennarar þurfa að taka virkan þátt í þróun námskrár og fá tíma, starfsþróun, námsgögn og stuðning til að færa hana inn í daglegt skólastarf.

Stuðlum að frekari fagmenntun


Öflugir skólar byggjast á öflugum kennurum.

Menntun kennara er grunnurinn að öflugri kennarastétt, bæði vönduð grunnmenntun og markviss starfsþróun alla starfsævina. Rannsóknir sýna skýr tengsl milli sterkrar kennslufræðilegrar þekkingar, gæða kennslu og námsárangurs nemenda.

Við þurfum markvisst átak til að fjölga menntuðum kennurum á öllum skólastigum og í öllum skólagerðum, með sérstakri áherslu þar sem skorturinn er mestur. Markmiðið er ekki aðeins að manna stöður heldur að laða fólk í kennaranám, styðja það inn í starfið og skapa starfsumhverfi þar sem kennarar vilja þróast og starfa til framtíðar.

Starfstengd leiðsögn nýliða er mikilvægur hluti af þeirri vegferð. Nýir kennarar þurfa tíma og rými til að njóta leiðsagnar reyndra kennara, byggja upp faglega sjálfsmynd og ná fótfestu í starfinu. Til þess þurfa stjórnvöld og rekstraraðilar að tryggja fjármagn og skipulag fyrir markvissa leiðsögn í öllum skólagerðum.

Kennaraskort leysum við ekki með lægri kröfum heldur með því að gera fleirum kleift að stunda kennaranám. Að verða góður kennari á að vera eftirsóknarvert.

Hlutfall fagmenntaðra í leikskólum eftir landshlutum 2024

Heimild: Hagstofa Íslands

Hlutfall fagmenntaðra í grunnskólum eftir landshlutum 2024

Heimild: Hagstofa Íslands

Hlutfall fagmenntaðra í framhaldsskólum árið 2021

0%10%20%30%40%50%60%70%80%90%100%74,9%25,1%Utan höfuðborgarsvæðis83,2%16,8%Höfuðborgarsvæði80,1%19,9%Alls

Heimild: Hagstofa Íslands

Barn að byggja úr kubbum í leikskóla

Markvisst átak þarf til að fjölga menntuðum kennurum á öllum skólastigum, með sérstakri áherslu þar sem skorturinn er mestur – og gera þeim kleift að þróast, vaxa og endast í starfi.

Horfum lengra í menntastefnu


Drengur við teikningu af sjálfum sér sem lækni

Skammtímahugsun í menntastefnu má aldrei ráða för. Við þurfum að horfa til lengri tíma í mótun hennar og tryggja að ábyrgð, eftirfylgni og fjármögnun fylgi þeim breytingum sem við viljum sjá.

Við þurfum að hefja strax undirbúning að menntastefnu til 2036.

Menntakerfi verður ekki byggt upp með skyndilausnum eða áherslum sem breytast með hverri ríkisstjórn. Menntastefna þarf að lifa lengur en ríkisstjórnir.

Það er vissulega mikilvægt skref að vinna við Menntastefnu til 2030 sé hafin á ný en árið 2030 er skammt undan. Samhliða þarf því að horfa lengra.

Nemendur, foreldrar, kennarar og annað fagfólk, sveitarfélög, ríki og samfélagið allt þurfa að koma að mótun næsta langtímavegvísis til að minnsta kosti ársins 2036.

Það þarf að skerpa á markmiðum, skilgreina aðgerðir og tryggja að ábyrgð, eftirfylgni og fjármögnun fylgi þeim breytingum sem við viljum sjá í íslensku menntakerfi. Þar þarf að ná samfélagslegri sátt um hvaða árangri við viljum ná fyrir börnin okkar og hvernig við mælum þann árangur.

Stöðugleiki, eftirfylgni og fjármögnun eru forsendur þess að fagfólk skólanna geti unnið markvisst að umbótum til framtíðar.

Fækkum skyndilausnum


Blásum byr í seglin og setjum framtíðina í forgang.

Við vitum að íslenskt skólastarf þarf að þróast. Nú þurfum við að sammælast um hvert við stefnum og sýna þrautseigju og þor til að komast þangað.

Hættum skyndilausnum og hættum að gera breytingar breytinganna vegna. Setjum okkur skýr markmið og byggjum ákvarðanir á þekkingu og reynslu fagfólks. Tryggjum tíma, mannauð og fjármagn til að fylgja þeim eftir.

Menntun barna og ungmenna er eitt mikilvægasta langtímaverkefni samfélagsins. Menntastefna má ekki vera háð pólitískum stefnubreytingum. Ákvarðanir okkar í dag móta skólana, samfélagið og tækifæri komandi kynslóða.

Litrík hús í Reykjavík

Rekstrarkostnaður grunnskóla eftir landshlutum


Kostnaður á nemanda, 2024

*Raunverulegt dæmi um sveitarfélag á landsbyggðinni – nafni breyttHeimild: samband.is, 2024

Rekstrarkostnaður leikskóla eftir landshlutum


Kostnaður á nemendaígildi, 2024

*Raunverulegt dæmi um sveitarfélag á landsbyggðinni – nafni breyttHeimild: samband.is, 2024
Þróun opinberra fræðsluútgjalda 2012–2024

60%80%100%120%140%2012201320142015201620172018201920202021202220232024106%116%111%98%93%86%81%

Mótum framtíðina saman